Hvenær þarf að skipta um þak?
Helstu merki þess að þakið sé komið á tíma og hvernig á að meta ástand þess áður en það verður of seint.
Þakið er mikilvægasta vörnin sem húsið þitt hefur gegn íslenskri veðráttu. Það tekur á sig bleytu, frost og stormasamt veður allan ársins hring. En eins og með allt annað, þá á það sér sinn líftíma.
Að bíða of lengi með þakskipti getur orðið dýrkeypt. Ef raki kemst inn og skemmir timburklæðningu eða sperrur verður viðhaldið fljótt miklu dýrara. Það borgar sig því aldrei að bíða eftir að þak byrji að leka.
Aldurinn segir sína sögu
Þegar skipt er um bárujárn og pappa, og vel er vandað til verka, þá má áætla að þakið dugi í rúmlega 30 ár. Endingartíminn fer samt mikið eftir því hvernig viðhaldi hefur verið sinnt t.d. hversu oft þakrennur eru hreinsaðar.
Ryð og tæring
Ef þakið er byrjað að tærast eða ryðga er best að grípa inn í sem fyrst. Skemmdirnar byrja nánast undantekningarlaust í kringum eldri þaknagla eða skrúfur, og við endana á þakbárunni þar sem álagið er mest. Ef ryðið er farið að breiðast út um flötinn dugar ekki lengur að mála yfir það, þá þarf einfaldlega nýtt járn.
Leyfðu okkur að kíkja á þakið þitt með þér
Það getur verið erfitt að meta ástandið sjálfur og best er að fá fagmenn til að meta ástand þaksins.
Heyrðu í okkur hjá Þakmeistaranum. Við mætum á staðinn og gerum heiðarlega ástandsskoðun á þakinu þínu. Við skoðum járnið, naglana, undirlagið og rennurnar. Ef þakið er í góðu lagi þá segjum við þér það beint, en ef það er komið á tíma á þakskipti eða viðgerð þá gefum við þér tilboð í verkið.
